Fara beint í efni

Ferlið

Svona verður vefurinn þinn til.

Þrír kaflar, átta skref. Þú sérð hönnunina áður en þú borgar krónu, og við erum til staðar eftir útgáfu.

Kafli 1

Áður en samið er

Engin skuldbinding, engin áhætta — þú sérð hönnunina áður en þú borgar krónu.

  1. Skref 1

    Þú

    Fyrirspurnin

    Allt byrjar á einu skilaboði. Ekkert flóknara en það.

    Skilaboð

    „Við erum með gamla síðu sem var sett upp fyrir mörgum árum. Hún segir í raun ekkert um hvað við gerum og lítur illa út í síma. Hvað kostar að gera nýja?“
  2. Skref 2

    Litljómi

    Sýnishornið

    Áður en nokkuð er undirritað sérðu tillögu að nýjum vef — með útliti, uppbyggingu og virkni sem þú getur tekið afstöðu til, ekki bara orð á blaði.

    Sýnishorn

    Þú sást hönnunina áður en þú borgaðir krónu.

  3. Skref 3

    Litljómi → Þú

    Tilboðið

    Ef sýnishornið sannfærir fylgir tilboð — skýrt, tímasett, og með verði sem þú sérð fyrst þegar þú ert tilbúinn að spyrja.

    Tilboð í vefsíðugerð

    Samþykkt

Kafli 2

Verkefnið

Fjórir áfangar. Skýrt hlutverk fyrir okkur bæði í hverjum þeirra.

  1. Áfangi 1

    Þú

    Upphaf

    Fyrsta skrefið er þitt — fjögur atriði, ekkert flóknara.

    Gátlisti — það sem við þurfum frá þér

    • efni og texti
    • myndir
    • lén og aðgangar
    • kennitala og reikningsupplýsingar
  2. Áfangi 2

    Litljómi → Þú

    Fyrsta yfirferð

    Fyrsta útgáfan sýnir nákvæmlega hvernig nýja síðan mun líta út og virka. Núna er komið að þér að segja hvað má betur fara.

    Fyrsta útgáfan er tilbúin

    1. „Getum við sett símanúmerið efst?“
    2. „Vantar ekki mynd af okkur? Fólk vill sjá hverjir standa á bak við þetta.“
    3. „Get ég bara sagt fólki að hringja?“
  3. Áfangi 3

    Þú → Litljómi

    Lokafrágangur

    Athugasemdirnar verða að breytingum, ein af annarri — og vefurinn breytist í takt.

    Breytingayfirlit

    • Símanúmer komið í haus
    • Mynd komin inn
    • Skýr áhersla á símann
  4. Áfangi 4

    Litljómi

    Útgáfa og flutningur

    Nýja lénið tekur við — og þú þarft ekki að snerta neitt.

    • A-færsla
    • SSL
    • Search Console
    • Umami

    Við flytjum lénið. Þú þarft ekki að tala við hýsingaraðilann.

Kafli 3

Eftir afhendingu

Verkefnið klárast ekki við útgáfu — þrjátíu daga ábyrgð fylgir með, og eftir það er þjónustan til staðar ef þú vilt.

  1. 30 dagar

    Þú og Litljómi

    Eftirfylgni

    Þrjátíu dagar þar sem lausir endar eru hnýttir — og það er sannað, ekki bara lofað.

    30Dagar

    Dagur 6 · ábending:

    „Tengiliðaformið sendir ekki í Safari.“

    Lagað sama dag · Enginn reikningur.

Í boði eftir útgáfu

Vefumsjón, netföng, efnisstjórnun.

Vefhýsing · Netföng á léninu · Vefumsjón · Efnisstjórnunarkerfi · Vefgreining, þrjú þeirra með eigin síðu.

Nú þú

Fáðu ókeypis sýnishorn.

Fyrirtæki, netfang, vefslóð. Eða fáðu tilboð.

Óskuldbindandi. Þú sérð hönnunina áður en þú ákveður nokkuð.

hello@litljomi.is · 853 4552