Skip to main content

Sjáðu hvar síðan þín stendur

Vefskoðun

Sláðu inn vefslóð og fáðu samstundis skýrslu um hraða, aðgengi, SEO og fleira — borið saman við vefi sem Litljómi hefur gert.

Ókeypis og engin skuldbinding. Skoðunin tekur oftast 20–40 sekúndur.

/ ferlið

Hvað er skoðað?

Vefskoðunin keyrir Lighthouse-mælingu frá Google og tólf eiginskoðanir Litljóma á síðunni þinni — hér er það helsta sem er metið.

Hraði

01

Hversu hratt birtist síðan?

Google mælir hleðslutímann skref fyrir skref á farsíma — og hæg síða missir gesti áður en hún nær að sýna þeim nokkuð. Við skoðum hvað tefur og hvað er hægt að sækja.

Skoðað

  • Hleðslutími skref fyrir skref
  • Stærstu myndefni og skriftur
  • Frammistaða á farsíma
PageSpeedLighthouse

Aðgengi

02

Getur allt fólk notað vefinn?

Líka með skjálesara, lélegt netsamband eða eldri síma. Gott aðgengi stækkar hópinn sem vefurinn þjónar — og styrkir leitarvélastöðuna í leiðinni.

Skoðað

  • Skjálesarar og lyklaborð
  • Litaskil og læsileiki
  • Merking mynda og hnappa
AðgengiWCAG

SEO

03

Finnur Google síðuna og skilur hana?

Við skoðum titla, lýsingar og tæknilega uppsetningu sem ráða því hvernig — og hvort — vefurinn birtist í leitarniðurstöðum.

Skoðað

  • Titlar og lýsingar
  • Tæknileg uppsetning
  • Deilikort og sitemap
SEOLýsigögn

Eiginskoðanir Litljóma

04

Tólf atriði sem Google sleppir

Það sem fellur utan við mælingar Google en skilur vandaðan vef frá hinum — deilikort fyrir samfélagsmiðla, favicon, tungumálsmerking og fleira.

Skoðað

  • Deilikort fyrir samfélagsmiðla
  • Favicon og merki
  • Tungumálsmerking og sitemap
12 atriði

/ verkefni

Vefir sem Litljómi hefur gert

Vefir sem Litljómi hefur gert mælast að meðaltali 84 af 100 í frammistöðu á farsíma. Skýrslan ber síðuna þína saman við þá.

Sjáðu hvar þín síða stendur — skoðunin tekur hálfa mínútu.