Skip to main content
Konditorsamband Íslands
Konditorsamband Íslands logo

Konditorsamband Íslands

2026Hönnun & þróun
Konditorsamband Íslands screenshot 1
Konditorsamband Íslands screenshot 2
Konditorsamband Íslands screenshot 3

Samantekt

  • Endurgerð vefsíðu fyrir Konditorsamband Íslands með það markmið að færa eldri vef yfir í nútímalegt og hraðvirkt stafrænt umhverfi
  • Uppfærður efnisarkitektúr sem gerir fréttir, greinar, fræðsluefni og myndasöfn skýrari og aðgengilegri
  • Vefurinn virkar sem lifandi safn yfir íslenska konditorhefð — viðburðir, keppnir, greinar og saga fagins á einum stað
  • Hraður statískur Next.js vefur með nútímalegri frammistöðu og farsímavænni upplifun
  • Myndræn framsetning þar sem ljósmyndir og skipulögð myndasöfn gefa efni og viðburðum meiri dýpt
  • Hrein slóðauppbygging og skýr efnisarkitektúr sem hjálpar leitarvélum að skilja og flokka efnið
  • Tæknileg SEO-grunnstoð með structured data, sitemap uppbyggingu og hreinni metadata stjórnun
  • Minimal og fagleg hönnun sem setur efnið í forgrunn og tryggir góðan læsileika

Um verkefnið

Konditorsamband Íslands er fagfélag íslenskra konditora og fyrirtækja sem starfa við rekstur konditori, með það markmið að efla menntun, verkkunnáttu, virðingu og vöruvöndun í greininni og standa vörð um sérstöðu hennar sem sjálfstæðrar iðngreinar. Markmiðið með nýju vefsíðunni var að færa eldri vef yfir í nútímalegt stafrænt umhverfi og skapa skýrt og faglegt stafrænt heimili fyrir sambandið.

Gamla vefkerfið var komið til ára sinna og efnisuppbygging þess ekki lengur í takt við þarfir notenda. Notendur áttu erfitt með að finna greinar, fréttir og myndir frá viðburðum. Verkefnið fólst því fyrst og fremst í að endurhugsa efnisarkitektúr vefsins og gera efnið aðgengilegra og skýrara.

Nýja lausnin var hönnuð og þróuð frá grunni með áherslu á einfaldleika, hraða og efnisframsetningu. Fréttir, greinar og fræðsluefni eru skipulögð þannig að vefurinn virkar sem lifandi safn yfir íslenska konditorhefð — þar sem saga, viðburðir, keppnir og faglegt efni safnast saman á einum stað.

Myndræn framsetning leikur einnig stórt hlutverk. Myndir frá keppnum, námskeiðum og viðburðum fá að njóta sín í skipulögðum myndasöfnum sem gera vefinn líflegan og gefa innsýn í starfsemi sambandsins.

Vefurinn var byggður með nútímalegri vefarkitektúr þar sem hraði, einfaldleiki og viðhaldsvæn uppbygging eru í forgrunni. Framendinn er þróaður í Next.js með TypeScript og Tailwind og keyrir sem hraður statískur vefur sem skilar mjög góðri frammistöðu bæði á tölvum og farsímum.

Tæknileg SEO var einnig stór hluti verkefnisins. Vefurinn var byggður með hreinu URL-kerfi, canonical slóðum og skýrri slóðauppbyggingu sem hjálpar leitarvélum að skilja og flokka efnið. Sett var upp XML sitemap, sitemap index og robots.txt til að tryggja rétta indexun, ásamt structured data (JSON-LD) sem gefur leitarvélum betri innsýn í efnið.

Metadata er stjórnað kerfisbundið á síðu- og vefstigi með titlum, lýsingum og Open Graph / Twitter tags fyrir samnýtingu efnis. Auk þess var hugað að tæknilegum atriðum eins og hreinni heading-hierarchy, alt texta fyrir myndir og canonical domain redirectum (HTTPS og non-www).

Frammistaða og crawlability voru einnig í forgrunni. Vefurinn notar route-level code splitting, lazy loading fyrir myndir, myndþjöppun og bundle-hagræðingu til að halda síðunni hraðri og léttari. Staging umhverfi er jafnframt varið gegn indexun til að koma í veg fyrir tvítekið efni.

Heildaruppbyggingin var hönnuð með það að markmiði að tryggja skýra indexun, hraða frammistöðu og sterkan grunn fyrir langtíma sýnileika í leitarvélum

Hönnunin er minimal og fagleg til að láta efnið sjálft njóta sín. Mikil áhersla er á læsileika, gott rými og rólegt layout sem gerir efnið aðgengilegt fyrir breiðan notendahóp.

Niðurstaðan er hraður, nútímalegur og SEO-vænn vefur sem þjónar bæði fagfólki og almenningi — stafrænt heimili fyrir Konditorsamband Íslands og vettvangur fyrir íslenska konditorhefð á netinu.