GreinarTækni
Tækni
Staða íslenskra vefja 2026 — hvað sýna 1.389 mælingar?
Við kortlögðum 3.500 fyrirtæki og stofnanir í níu greinum og mældum vefina þeirra. Flestir eru í lagi á pappírnum. Færri eru í lagi í raun.
Í þessari grein
Hvernig standa íslenskir fyrirtækjavefir í raun? Það er spurning sem fáir hafa svarað með tölum. Í ágúst og september 2026 reyndum við það.
Við kortlögðum 3.500 fyrirtæki og stofnanir í níu greinum, fundum vefina þeirra og mældum þá. Hér eru helstu niðurstöðurnar. Engin einstök fyrirtæki eru nefnd, aðeins heildartölur.
Hvað var skoðað?
Greinarnar níu eru tannlæknastofur, sveitarfélög, sjúkraþjálfun, fasteignasölur, dýralæknar, verkfræði- og arkitektastofur, bókhalds- og fjármálafyrirtæki, ferðaþjónusta og bílasölur.
- Vefur var aðeins tengdur fyrirtæki ef það var staðfest á vefnum sjálfum. Lén sem líktist nafninu dugði ekki.
- 1.389 grunnmælingar: öruggt samband (https), aðlögun að síma, deilitög fyrir samfélagsmiðla, ártal í fæti, aðgengi og hvenær vefurinn breyttist síðast, metið eftir föstum kvarða.
- 1.374 dýpri skoðanir: aldur útlitsins, hvernig vefurinn birtist í síma, hvenær efni var síðast uppfært og á hvaða kerfi hann keyrir.
Kvarðinn var prófaður á 22 vefjum sem staða var þekkt fyrir, og hann flokkaði 21 þeirra rétt. Hraði var mældur en ekki notaður til að flokka, því gamall og einfaldur vefur getur verið mjög hraður.
Útlitið var metið blint, eftir skjámyndum, án upplýsinga um fyrirtækið á bak við vefinn. Í prufu þar sem tveir matsaðilar mátu sömu 40 vefina voru þeir sammála um aldur útlitsins í 80% tilvika og innan eins flokks í 95% tilvika.
Flestir vefir eru í lagi á pappírnum
Af vefjunum sem fengu báðar mælingarnar lenti hver í einum af fjórum flokkum:
- Fullnægjandi: 1.022 vefir.
- Sterkir: 173 vefir.
- Úreltir: 151 vefur.
- Bilaðir: 27 vefir.
Um þrír af hverjum fjórum teljast því fullnægjandi. Það hljómar vel, en „fullnægjandi“ þýðir aðeins að engin hlutlæg merki um hnignun fundust. Það segir lítið um hvort vefurinn líti vel út eða geri það sem hann á að gera.
Fullnægjandi er ekki það sama og gott
Þegar dýpri skoðunin var lögð ofan á kom í ljós að 62% fullnægjandi vefja bera að minnsta kosti einn greinilegan veikleika:
- 384 fullnægjandi vefir voru án athugasemda.
- 429 báru einn veikleika.
- 209 báru tvo eða fleiri.
Sex af hverjum tíu „fullnægjandi“ vefjum eru í lagi á pappírnum en ekki í raun.
Algengustu veikleikarnir
Innan hóps fullnægjandi vefja voru þetta algengustu atriðin:
- Engin bókun á netinu (351): aðeins mælt í greinum þar sem viðskiptavinir bóka tíma eða ferðir, það er ferðaþjónustu, tannlæknum, sjúkraþjálfun og dýralæknum. Þar þarf viðskiptavinurinn að hringja eða senda póst.
- Bundinn við kerfi þjónustuaðila (267): vefurinn keyrir á lokuðu kerfi sem 10 eða fleiri vefir í úrtakinu deila. Opin kerfi eins og WordPress teljast ekki með.
- Brotinn í síma (79): efni flæðir út af skjánum, skarast eða er of smátt til að lesa.
- Tæknilega í lagi en útlitið frá 2014 eða fyrr (76).
- Enginn enskur texti á ferðaþjónustuvef (73).
- Ekkert nýtt efni í þrjú ár eða lengur (73).
Sami vefur getur borið fleiri en einn veikleika, svo tölurnar leggjast ekki saman.
Kerfið ræður meiru en hönnuðurinn
Íslenskar vefstofur merkja sjaldnast verkin sín, svo erfitt er að sjá hver smíðaði hvaða vef. Það sem sést er kerfið sem vefurinn keyrir á. Stærstu lokuðu kerfin í úrtakinu voru Wix með 90 vefi, Moya með 71, Squarespace með 57 og WebEd Pro með 53.
Það er ekkert að því að vera á tilbúnu kerfi. En þá ræður kerfið hversu hratt vefurinn er, hvað hægt er að breyta og hvað kostar að flytja hann annað. Það er gott að vita áður en ákvörðunin er tekin, ekki eftir.
Margir hafa engan vef
Í sumum greinum var stærsta niðurstaðan ekki slakur vefur heldur enginn vefur. Af 99 tannlæknastofum sem við fundum í skrá Tannlæknafélagsins höfðu 54 engan eigin vef í lok ágúst, og það var staðfest með nokkrum ólíkum leitaraðferðum.
Sumar þeirra nota Facebook-síðu eða bókunarkerfi í staðinn. Það virkar að hluta, en fólk sem leitar að þjónustunni á Google finnur þá oft eitthvað annað fyrst.
Hvað þýðir þetta fyrir þinn vef?
Ef vefurinn þinn er „í lagi“ er þess virði að spyrja nokkurra spurninga:
- Getur viðskiptavinur gert það sem hann kom til að gera, til dæmis bókað, pantað eða haft samband, án þess að hringja?
- Hvernig lítur vefurinn út í alvöru síma, ekki bara í þröngum glugga á tölvu?
- Hvenær var síðast bætt við efni? Er ártalið neðst á síðunni rétt?
- Hver á vefinn og kerfið sem hann keyrir á, og hvað kostar að flytja hann?
- Myndir þú hanna hann svona í dag?
Um aðferðina
Tölurnar eru skyndimynd frá ágúst og september 2026. Vefir sem ekki var hægt að tengja örugglega við fyrirtæki voru ekki mældir, og 583 slík lén bíða enn staðfestingar. Sjálfvirk mæling og mat á útliti segja margt, en ekki allt: hvorugt mælir hvort efnið sjálft sé gott.
Við birtum aðeins heildartölur og nefnum engin einstök fyrirtæki. Markmiðið er ekki að benda á neinn, heldur að sýna hvar íslenskir vefir standa almennt.