Fara beint í efni

GreinarTækni

Tækni

Hraði skiptir máli — hvað mælir Google í raun?

Talan í PageSpeed Insights er aðeins hluti sögunnar. Google mælir hvað gesturinn finnur: hleðslu, svörun og stöðugleika.

Einar Zoega · 6 mín lestur

Flestir sem hafa keyrt vefinn sinn í gegnum PageSpeed Insights kannast við litaða hringinn með tölunni í miðjunni. 92. Eða 47. Og þá vaknar spurningin: skiptir þessi tala í raun máli?

Svarið er flóknara en talan sjálf. Google mælir ekki „hraða“ sem eina einkunn. Það horfir á nokkur afmörkuð atriði sem gesturinn finnur beint fyrir, og notar til þess tvenns konar gögn sem er auðvelt að rugla saman.

Hér er farið yfir hvað er mælt, hvaðan tölurnar koma og hvernig best er að lesa þær.

Þrjár mælingar sem skipta mestu

Google kallar þær Core Web Vitals. Þær eiga að lýsa því sem gesturinn upplifir þegar hann opnar síðu:

  • Hleðsla (LCP): hvenær birtist aðalefni síðunnar?
  • Svörun (INP): bregst vefurinn fljótt við þegar smellt er eða snert?
  • Stöðugleiki (CLS): færist efnið til á meðan síðan hleðst?

Hver mælikvarði hefur skýrt viðmið fyrir hvað telst gott. Það sem skiptir máli er ekki hvað tölvan þín er að gera, heldur hvað gesturinn sér og finnur.

Skýringarmynd: þrjár mælingar Core Web Vitals og viðmið fyrir gott. LCP, hleðsla, 2,5 sekúndur eða minna. INP, svörun, 200 millisekúndur eða minna. CLS, stöðugleiki, 0,1 eða minna.
Þrjár mælingar, þrjú viðmið fyrir „gott“.

LCP: hvenær birtist það sem skiptir máli?

LCP stendur fyrir Largest Contentful Paint. Hún mælir hvenær stærsti sýnilegi hlutinn á síðunni, oftast aðalmynd eða stór fyrirsögn, er kominn á skjáinn.

Viðmiðið fyrir gott er 2,5 sekúndur eða minna. Algengustu ástæður fyrir því að vefur nær því ekki eru of stórar myndir, hæg hýsing og forskriftir sem tefja birtingu síðunnar.

INP: bregst vefurinn við þegar ég smelli?

INP stendur fyrir Interaction to Next Paint. Hún mælir hversu lengi líður frá því að gestur smellir, snertir skjáinn eða ýtir á takka þar til vefurinn sýnir viðbrögð. Hún horfir á alla heimsóknina og tekur mið af hægustu viðbrögðunum, ekki bara þeim fyrstu.

Viðmiðið er 200 millisekúndur eða minna. INP kom í stað eldri mælingar sem hét FID og varð fullgildur hluti af Core Web Vitals árið 2024. Það sem hægir helst á svörun er mikið magn af JavaScript, til dæmis frá viðbótum, spjallgluggum og mælingarforskriftum.

CLS: hoppar síðan til?

Allir kannast við að ætla að ýta á einn hnapp, en síðan hoppar til rétt áður og maður ýtir á eitthvað allt annað. CLS (Cumulative Layout Shift) mælir nákvæmlega þetta: hversu mikið efni færist óvænt til á meðan síðan hleðst.

Viðmiðið er 0,1 eða minna. Algengar orsakir eru myndir án fyrirfram ákveðinnar stærðar, borðar sem birtast seint og letur sem skiptir um útlit þegar það hleðst.

Prófunargögn og raunveruleg gögn: tvær ólíkar tölur

Hér verður oft misskilningur. PageSpeed Insights sýnir tvenns konar gögn og þau eru ekki sami hluturinn.

  • Prófunargögn (lab) koma úr Lighthouse, sem hleður síðuna einu sinni í hermdu umhverfi með fyrirfram ákveðnu tæki og neti. Talan í hringnum, 0–100, kemur eingöngu héðan.
  • Raunveruleg gögn (field) koma frá Chrome-notendum sem hafa í raun heimsótt vefinn síðustu 28 daga. Það eru þau sem Core Web Vitals-matið byggir á.
Skýringarmynd: prófunargögn koma úr einni hermdri keyrslu og gefa töluna í hringnum í PageSpeed Insights. Raunveruleg gögn koma frá gestum síðustu 28 daga og eru sýnd efst í skýrslunni.
PageSpeed Insights sýnir hvort tveggja. Talan í hringnum kemur úr prófunargögnunum.

Raunveruleg gögn eru metin á 75. hundraðshluta: ef þrír af hverjum fjórum heimsóknum ná viðmiðinu telst mælikvarðinn góður. Þau eru líka flokkuð sérstaklega eftir farsíma og tölvu.

Í farsímaprófinu er hermt eftir meðalsíma á frekar hægu neti, svo talan er oft lægri en fólk býst við. INP er ekki hægt að mæla í prófun, því hún krefst raunverulegra samskipta. Þar er notuð mæling sem heitir TBT (Total Blocking Time) sem staðgengill.

Þess vegna geta tölurnar sagt sitt hvora söguna. Vefur getur fengið 98 í prófun en samt átt í vandræðum hjá raunverulegum gestum með gamla síma, og öfugt.

Af hverju sýnir skýrslan stundum engin raunveruleg gögn?

Ef vefurinn fær fáar heimsóknir er ekki til nóg af gögnum til að reikna neitt. Þá sýnir PageSpeed Insights annaðhvort tölur fyrir allt lénið í stað einstakrar síðu, eða engin raunveruleg gögn.

Það á við um marga íslenska fyrirtækjavefi, sérstaklega nýja vefi og nýjar undirsíður. Það er ekki galli á vefnum, aðeins merki um að gestirnir séu of fáir til að Google geti mælt þá. Þá eru prófunargögnin það sem hægt er að styðjast við. Þegar gögnin eru til sýnir Google Search Console skýrslu um Core Web Vitals fyrir vefinn.

Skiptir þetta máli fyrir leitarniðurstöður?

Já, en með fyrirvara. Google segir sjálft að leitarvélin sækist alltaf eftir því að sýna það efni sem er mest viðeigandi, jafnvel þótt upplifun á síðunni sé slök.

Fyrir margar leitir er hins vegar til mikið af gagnlegu efni, og þá getur góð upplifun á síðunni hjálpað. Hraði kemur því ekki í stað góðs efnis, en hann getur skipt máli þegar efnið er sambærilegt.

Hraði er ekki einkunn. Hann er það sem gesturinn finnur.

Og þar liggur stærsti ávinningurinn: hægur vefur reynir á þolinmæði gesta, hvort sem Google horfir á hann eða ekki.

Hvernig á að lesa skýrsluna

Þegar þú opnar skýrslu í PageSpeed Insights er gott að fara yfir hana í þessari röð:

  1. Byrjaðu á raunverulegu gögnunum efst, ef þau eru til. Þau lýsa því sem gestir upplifa.
  2. Skoðaðu síðan LCP, CLS og TBT í prófunargögnunum. Þessar þrjár mælingar bera stærstan hluta einkunnarinnar.
  3. Keyrðu prófið nokkrum sinnum. Prófunartölur sveiflast milli keyrslna og ein mæling er ekki dómur.
  4. Skoðaðu farsímann sérstaklega, því þar er hermt eftir hægara tæki og neti.
  5. Ekki eltast við 100. Yfir 90 telst gott og síðustu stigin kosta oft meira en þau skila.

Hvað er hægt að gera?

Flest af því sem hægir á fyrirtækjavef er einfalt að laga þegar orsökin er þekkt. Algengustu atriðin:

  • Myndir í réttri stærð og sniði. Of stórar myndir eru ein algengasta ástæða hægrar hleðslu.
  • Fast pláss fyrir myndir og borða. Þá hoppar síðan ekki til þegar efnið hleðst.
  • Færri og léttari viðbætur. Spjallgluggar, mælingar og efni frá þriðja aðila bæta oft mestu JavaScript við.
  • Góð hýsing. Hægur þjónn seinkar öllu sem á eftir kemur.
  • Prófun á alvöru síma. Tölva með hraðri tengingu sýnir aðra mynd en meðalsími á farsímaneti.

Þetta eru oftast markvissar lagfæringar, ekki ný smíði. Og þær eru mun auðveldari ef hraðinn er hafður í huga frá upphafi.

Mældu það sem gesturinn finnur

Talan í hringnum er gagnleg vísbending, en hún er ekki markmiðið. Markmiðið er vefur sem birtist fljótt, bregst strax við og hoppar ekki til.

Ef þú manst þrennt: LCP er hleðslan, INP er svörunin og CLS er stöðugleikinn. Og raunveruleg gögn segja meira en ein prófun.

Hvað eigum við að búa til?

Fá tilboð