Fara beint í efni

GreinarLeiðarvísar

Leiðarvísir

Lén, DNS og hýsing — útskýrt á mannamáli

Lén, DNS og hýsing koma nánast alltaf upp þegar vefur er smíðaður eða fluttur — og eru oft notuð eins og þau séu sami hluturinn. Það eru þau ekki.

Einar Zoega · 6 mín lestur

Í einföldustu mynd má hugsa þetta svona:

  • Lénið er nafnið, til dæmis fyrirtaeki.is.
  • Hýsingin er staðurinn þar sem vefurinn keyrir.
  • DNS segir hvert lénið á að vísa.
  • Tölvupósturinn getur svo verið hjá allt öðrum þjónustuaðila.

Þegar þessi aðgreining er skýr verður mun auðveldara að skilja hvað raunverulega gerist þegar vefur er fluttur, nýr vefur fer í loftið eða breytingar eru gerðar á uppsetningu lénsins.

Hvað er lén?

Lén er vefslóðin sem fólk notar til að finna fyrirtækið þitt á netinu, til dæmis fyrirtaeki.is. Lénið er skráð sérstaklega og þarf ekki að vera hjá sama aðila og hýsir vefsíðuna.

Það er mikilvægt vegna þess að margir hugsa ósjálfrátt um lénið og vefinn sem einn og sama hlutinn. Í raun má skipta út allri vefsíðunni, færa hana á nýja hýsingu eða byggja hana frá grunni án þess að lénið sjálft breytist.

Lénið er heimilisfangið, ekki húsið. Þú getur breytt því sem er á bak við heimilisfangið án þess að skipta um heimilisfang.

Skýringarmynd: heimilisfangið fyrirtaeki.is vísar á nýtt hús. Gamli vefurinn er sýndur í daufum lit og nýi vefurinn í grænu.
Lénið helst þótt vefurinn skipti um hýsingu.

Hvað er hýsing?

Vefsíða þarf einhvers staðar að keyra. Hýsing er sú þjónusta sem sér um að gera vefinn aðgengilegan þegar einhver slær lénið inn í vafra. Á hýsingunni eru þau gögn og kerfi sem mynda vefinn og sjá til þess að hann birtist notendum.

Ef fyrirtæki skiptir um hýsingaraðila þýðir það því ekki að það þurfi nýtt lén. Vefurinn getur færst frá einum stað yfir á annan á meðan lénið helst nákvæmlega eins. Fyrir þann sem heimsækir vefinn þarf breytingin ekki einu sinni að vera sýnileg.

Hvað er DNS?

DNS er kerfið sem tengir þetta saman. Þegar einhver slær fyrirtaeki.is inn í vafra þarf að liggja fyrir hvert á að senda viðkomandi. DNS-færslur lénsins geyma meðal annars þær upplýsingar. Það má hugsa um DNS sem leiðarvísi fyrir lénið.

Ein færsla getur sagt hvert vefurinn á að vísa, önnur hvert tölvupóstur á að fara og enn aðrar tengjast öryggi, staðfestingum eða annarri þjónustu. Þess vegna er DNS ekki bara eitthvað sem tengist vefsíðunni sjálfri. Það getur verið miðpunktur fyrir margar mismunandi þjónustur sem allar nota sama lénið.

DNS-færslurnar sjálfar þurfa svo að vera geymdar einhvers staðar. Þeim er stjórnað þar sem nafnaþjónar lénsins vísa: hjá þeim sem skráir lénið, hjá hýsingaraðilanum eða hjá sérstakri DNS-þjónustu. Sá sem stýrir nafnaþjónunum stýrir DNS-færslunum, og þess vegna skiptir máli að vita hver það er.

Skýringarmynd: lénið fyrirtaeki.is vísar í DNS. DNS sendir vefsíðuna til hýsingar og tölvupóstinn til póstþjónustu.
Sama lén getur tengst mörgum ólíkum kerfum. DNS segir hvert hver hluti á að fara.

Nokkrar DNS-færslur sem gott er að kannast við

Það þarf ekki að kunna að stilla DNS til að reka fyrirtækjavef, en það er gagnlegt að þekkja nokkur hugtök sem koma oft upp.

  • A-færsla segir yfirleitt á hvaða IP-tölu þjónn eða vefur á að vísa.
  • AAAA-færsla gegnir svipuðu hlutverki en fyrir IPv6-tölur.
  • CNAME er oft notað fyrir undirlén eða heiti eins og www.
  • MX-færslur segja hvert tölvupóstur fyrir lénið á að fara.
  • TXT-færslur eru meðal annars notaðar fyrir staðfestingar, öryggisstillingar og reglur tengdar tölvupósti.

Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að breytingar á DNS þarf að gera markvisst. Ein breyting getur haft áhrif á vefinn. Önnur getur haft áhrif á tölvupóstinn. Þriðja getur tengst þjónustu sem sést hvergi á yfirborðinu.

Vefsíðan og tölvupósturinn þurfa ekki að vera á sama stað

Þetta er eitt algengasta atriðið sem veldur ruglingi. Fyrirtæki getur verið með:

  • lénið skráð hjá einum aðila,
  • vefsíðuna hýsta hjá öðrum,
  • tölvupóst hjá þeim þriðja,
  • og aðra þjónustu tengda léninu annars staðar.

Fyrir notandann lítur þetta samt út eins og ein samfelld heild. Til dæmis getur vefurinn verið á fyrirtaeki.is og starfsfólk notað netföng eins og nafn@fyrirtaeki.is, þótt vefurinn og pósturinn séu alls ekki hýstir á sama stað.

Það er því fullkomlega eðlilegt að flytja vefsíðuna án þess að færa tölvupóstinn. Við slíkan flutning þarf einfaldlega að passa að breyta aðeins þeim DNS-færslum sem tengjast vefnum og láta aðrar mikilvægar færslur halda sér.

Hvað gerist þegar vefur er fluttur?

Segjum að fyrirtæki sé með eldri vef sem á að skipta út fyrir nýjan. Nýi vefurinn er fyrst smíðaður annars staðar og yfirfarinn áður en skipt er yfir. Þegar hann er tilbúinn þarf yfirleitt ekki að flytja lénið sjálft. Í staðinn eru DNS-færslur uppfærðar þannig að fyrirtaeki.is byrji að vísa á nýju hýsinguna.

Vefurinn flyst. Lénið helst. DNS er uppfært.

Þrjár DNS-færslur við vefflutning: A og CNAME fyrir vefsíðuna eru breyttar og vísa á nýju hýsinguna, en MX-færslur fyrir tölvupóst og TXT-færslur fyrir staðfestingar og öryggi haldast óbreyttar.
Við vefflutning breytast aðeins færslurnar sem tengjast vefnum.

Ef tölvupósturinn á að halda áfram hjá sama aðila eru pósttengdar færslur látnar óbreyttar. Þetta er líka ástæðan fyrir því að góð yfirferð á DNS áður en vefur fer í loftið skiptir máli.

Af hverju geta svona breytingar farið úrskeiðis?

Vandamálið er yfirleitt ekki að DNS sé sérstaklega flókið. Vandamálið er þegar meira er breytt en þarf. Til dæmis getur farið illa ef:

  • öllum DNS-færslum er skipt út án þess að kanna hvað þær gera,
  • pósttengdar færslur eru fjarlægðar fyrir mistök,
  • nafnaþjónum er breytt án þess að afrita núverandi uppsetningu,
  • enginn veit lengur hver hefur aðgang að léninu,
  • aðgangur að mikilvægri þjónustu er bundinn við fyrrverandi starfsmann eða eldri þjónustuaðila.

Stærsta áhættan er því sjaldnast flókin tækni. Hún er að breyta meira en þarf.

Hver ætti að eiga lénið?

Fyrirtækið sjálft ætti að hafa stjórn á sínu eigin léni. Það þýðir ekki að stjórnendur þurfi sjálfir að sjá um DNS eða tæknilega uppsetningu. En fyrirtækið ætti að vita:

  • hvar lénið er skráð,
  • hver hefur aðgang að því,
  • hvar DNS er stjórnað,
  • hvar vefurinn er hýstur,
  • hvar tölvupósturinn er hýstur,
  • og hvaða aðrar mikilvægar þjónustur eru tengdar léninu.

Fyrir íslensk .is-lén er einfalt viðmið: lénið á að vera skráð á kennitölu fyrirtækisins, ekki á vefsmiðinn, auglýsingastofuna eða einstakan starfsmann. Þá getur fyrirtækið alltaf tekið stjórnina aftur, sama hver sér um vefinn hverju sinni.

Það er óþægileg staða ef enginn innan fyrirtækisins veit hver á aðganginn eða ef allt er skráð á persónulegan aðgang hjá utanaðkomandi aðila. Fyrirtækið þarf ekki að sjá sjálft um tæknina, en það ætti að eiga aðgang að henni.

Þarf ég að kunna allt þetta?

Nei. Flest fyrirtæki þurfa aldrei sjálf að breyta A-færslu, MX-færslu eða CNAME. Það sem skiptir meira máli er að skilja hvað hlutirnir eru og hvernig þeir tengjast. Ef þú veist að:

  • lénið er nafnið,
  • hýsingin keyrir vefinn,
  • DNS tengir þjónusturnar við lénið,
  • og tölvupósturinn getur verið sjálfstæður frá vefnum,

þá ertu þegar með mun skýrari mynd af því hvað gerist þegar vefur er fluttur eða nýr vefur settur í loftið. Og þegar sú mynd er skýr verður miklu auðveldara að gera breytingar án þess að raska því sem á að halda áfram að virka.

Hvað eigum við að búa til?

Fá tilboð