Fara beint í efni

GreinarLeiðarvísar

Leiðarvísir

Hvað gerist þegar ný vefsíða fer í loftið?

Útgáfudagur nýs vefs á að vera viðburðalítill: nýi vefurinn er þegar tilbúinn, lénið er látið vísa á hann og tölvupósturinn heldur áfram eins og áður.

Einar Zoega · 5 mín lestur

Nýi vefurinn á að vera tilbúinn, prófaður og yfirfarinn áður en skipt er yfir. Á útgáfudegi snýst vinnan því ekki um að „klára vefinn“ á síðustu stundu, heldur að tengja réttu hlutina saman og ganga úr skugga um að ekkert annað raskist í leiðinni.

Fyrir fyrirtækið sjálft á breytingin helst að vera einföld: sama lénið, sama tölvupóstfangið og sama starfsemi — en nýr vefur tekur við.

Skýringarmynd: þrjú skref við útgáfu nýs vefs. Fyrir útgáfu er nýi vefurinn smíðaður og prófaður og þar er mest vinnan. Á útgáfudegi er lénið látið vísa á nýja vefinn, ein breyting. Eftir útgáfu er vefurinn prófaður aftur á léninu.
Mesta vinnan er unnin áður en lénið er látið vísa á nýja vefinn.

Nýi vefurinn er tilbúinn áður en skipt er yfir

Nýr vefur er yfirleitt smíðaður og yfirfarinn á sérstakri prufuslóð á meðan gamli vefurinn er enn í loftinu.

Þar er hægt að fara yfir texta, myndir, tengla, eyðublöð og hvernig vefurinn birtist á mismunandi skjástærðum án þess að hafa áhrif á núverandi vef.

Á útgáfudegi á því ekki að þurfa að klára stór atriði í flýti. Nýi vefurinn er þegar tilbúinn. Það sem eftir stendur er að láta lénið vísa á hann.

Léninu er beint á nýja vefinn

Lénið og vefsíðan sjálf eru ekki sami hluturinn.

Lénið, til dæmis fyrirtaeki.is, getur verið skráð hjá einum aðila, vefurinn hýstur hjá öðrum og tölvupósturinn jafnvel hjá þeim þriðja. Nánar er fjallað um þennan mun í greininni um lén, DNS og hýsingu.

Þegar nýr vefur fer í loftið þarf því yfirleitt ekki að flytja lénið sjálft. Þess í stað er breytt þeim DNS-færslum sem segja hvert vefumferðin á að fara.

Þetta er í raun sjálf útgáfan:

Lénið hættir að vísa á gamla vefinn og byrjar að vísa á þann nýja.

Breytingin getur tekið smá tíma að dreifast. Á meðan geta sumir séð gamla vefinn og aðrir þann nýja. Það er eðlilegt og jafnar sig þegar nýju upplýsingarnar hafa dreifst.

Tölvupósturinn á að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist

Eitt algengasta áhyggjuefnið við flutning á vef er tölvupósturinn.

Það þarf hins vegar ekki að flytja póstþjónustuna bara af því að vefurinn flyst.

Fyrirtæki getur verið með vefinn á einum stað og tölvupóstinn á öðrum. Þess vegna er mikilvægt að greina á milli þeirra DNS-færslna sem tengjast vefnum og þeirra sem tengjast tölvupóstinum.

Það á aldrei að breyta DNS-færslum í blindni við útgáfu nýs vefs.

Áður en skipt er yfir þarf að vita hvaða færslur halda utan um:

  • vefinn
  • tölvupóstinn
  • staðfestingar og öryggisfærslur
  • aðra þjónustu sem tengist léninu

Ef það er gert rétt á starfsfólk ekki að verða vart við neina breytingu á tölvupóstinum þótt vefurinn sjálfur færist yfir á nýja hýsingu.

Gamlar slóðir mega ekki enda í blindgötu

Við endurbyggingu vefs breytist uppbyggingin oft.

Síður eru sameinaðar, heitum breytt og efni fært á nýjar slóðir. Þá þarf að huga að því hvað verður um gömlu slóðirnar.

Ef Google hefur þegar skráð gamla síðu, einhver hefur bókamerkt hana eða annar vefur tengir á hana er slæmt að hún endi einfaldlega á 404-síðu.

Þess vegna eru mikilvægar gamlar slóðir yfirleitt sendar áfram á viðeigandi nýjar síður. Slíkar áframsendingar kallast 301-tilvísanir og segja bæði vafra og leitarvélum að síðan hafi flust varanlega.

Skýringarmynd: gamlar slóðir eru sendar áfram á nýjar síður með 301-tilvísun. Slóð sem er ekki send áfram endar á 404-villusíðu.
Mikilvægar gamlar slóðir eru sendar áfram, annars enda þær í blindgötu.

Þetta gerir tvennt:

  • notandinn kemst áfram á réttan stað
  • leitarvélar skilja betur að efnið hafi flust en ekki horfið

Þetta skiptir sérstaklega miklu þegar verið er að endurbyggja vef sem hefur verið lengi í loftinu.

Vefurinn er prófaður aftur á raunverulega léninu

Þótt allt hafi verið yfirfarið fyrir útgáfu þarf alltaf að prófa vefinn aftur þegar hann er kominn á sitt endanlega lén.

Þá er meðal annars farið yfir:

  • hvort allar síður opnist
  • hvort HTTPS virki
  • hvort myndir, letur og önnur gögn hlaðist rétt
  • hvort eyðublöð skili sér
  • hvort innri og ytri tenglar virki
  • hvort vefurinn birtist rétt í síma og tölvu
  • hvort tölvupóstur og önnur lénstengd þjónusta hafi haldist óbreytt
  • hvort mikilvægar gamlar slóðir sendi áfram
  • hvort www og lénið án www endi á sama stað
  • hvort vefurinn sé opinn leitarvélum, þannig að noindex frá prufuslóðinni sitji ekki eftir
  • hvort mælingar og Search Console séu rétt tengd og vefkortið sent inn

Þetta er lokayfirferðin eftir útgáfu, ekki fyrsta skiptið sem verið er að athuga hvort vefurinn virki.

Hvað gerist með gamla vefinn?

Það þarf ekki alltaf að eyða gamla vefnum um leið og skipt er yfir.

Oft er skynsamlegt að halda gömlu hýsingunni tímabundið fyrst eftir að nýi vefurinn er kominn í loftið. Þá er auðveldara að bera saman gögn eða sækja eitthvað sem kann að hafa gleymst.

Gamli vefurinn á þó ekki að vera opinn öllum við hlið þess nýja: tvö eintök af sama efni rugla bæði leitarvélar og gesti.

Þegar nýi vefurinn hefur verið staðfestur og ljóst er að ekki þurfi lengur á þeirri gömlu að halda má loka gömlu hýsingunni.

Góð útgáfa á að vera frekar róleg

Það gerist ýmislegt á bak við tjöldin þegar ný vefsíða fer í loftið, en útgáfudagurinn sjálfur á ekki að vera dramatískur.

Flest áhættan á að hafa verið tekin úr ferlinu áður:

  • nýi vefurinn er tilbúinn
  • núverandi uppsetning lénsins er þekkt
  • tölvupósturinn er kortlagður
  • gamlar slóðir hafa verið yfirfarnar
  • það liggur fyrir hvað þarf að prófa eftir útgáfu

Þá verður niðurstaðan einföld.

Fólk fer inn á sama lén og áður — en sér nýja vefinn.

Hvað eigum við að búa til?

Fá tilboð