Fara beint í efni

GreinarLeiðarvísar

Leiðarvísir

Netfang á eigin léni — hvernig færðu netfang fyrir fyrirtækið?

Þú þarft ekki vefsíðu til að fá netfang á eigin léni. Hér er einfaldur leiðarvísir um póstþjónustu, uppsetningu, kostnað og gamla póstinn.

Litljómi · 7 mín lestur

Netfang eins og anna@fyrirtaeki.is gerir samskipti fyrirtækisins skýrari og heldur þeim á einum stað. Það getur líka haldist óbreytt þótt þú skiptir síðar um póstþjónustu.

Og það þarf ekki einu sinni að vera komin vefsíða. Til að byrja þarftu lén, póstþjónustu og nokkrar stillingar sem tengja þetta tvennt saman. Hér förum við yfir valkostina, uppsetninguna, kostnaðinn og hvað verður um gamla póstinn.

Af hverju að nota netfang á eigin léni?

Þrjár ástæður skipta mestu máli:

  • Traust og skýr ímynd. reikningar@fyrirtaeki.is tengist fyrirtækinu augljóslega, ólíkt netfangi á persónulegum Gmail-reikningi.
  • Betri yfirsýn. Fyrirtækið getur haft netföng fyrir starfsfólk, fyrirspurnir og reikninga og ráðið því hver hefur aðgang að hverju. Það skiptir mestu þegar fólk kemur eða fer.
  • Sveigjanleiki. Á meðan fyrirtækið á lénið er hægt að færa póstinn til annars þjónustuaðila án þess að breyta netföngunum.

Netfang á eigin léni er ekki sjálfkrafa öruggara. Öryggið ræðst af aðgangsstillingum, tveggja þátta auðkenningu og því hvernig póstþjónustan er sett upp.

Hvað þarf til að setja upp eigið netfang?

Í grunninn eru þetta þrír hlutir:

  1. Lén. Nafnið á eftir @, til dæmis fyrirtaeki.is. Það á að vera skráð á kennitölu fyrirtækisins hjá ISNIC, og fyrirtækið þarf aðgang að skráningunni.
  2. Póstþjónusta. Hún tekur við pósti, geymir hann og sendir.
  3. DNS-stillingar. Þær tengja lénið við póstþjónustuna. Mestu skipta MX-færslurnar: þær segja póstþjónum sendenda hvert póstur á lénið á að fara.

Póstforritið er það sem þú sérð og notar, til dæmis Gmail eða Outlook. Það er ekki það sama og póstþjónustan. Þú getur notað Outlook sem forrit þótt pósturinn sé hýstur annars staðar.

Þarf ég líka vefsíðu? Nei. Þú getur notað lénið eingöngu fyrir tölvupóst og bætt vefsíðu við síðar. Vefurinn og pósturinn geta líka verið hjá sitt hvorum aðilanum, eins og við útskýrum í Lén, DNS og hýsing — útskýrt á mannamáli.

Get ég notað Gmail eða Outlook?

Já, með réttri áskrift. Þrjár leiðir eru algengastar:

Þrjár algengustu leiðirnar að netfangi á eigin léni.
LeiðHentar þegarAthugaðu
Google WorkspaceFólk vinnur í GmailGreitt á notanda
Microsoft 365Fólk vinnur í OutlookEkki allar áskriftir
Póstur hjá LitljómaAðeins þarf póstPóstur, ekki dagatal

Með Google Workspace sendirðu frá anna@fyrirtaeki.is í Gmail. Með réttri Microsoft 365-áskrift gerirðu það sama í Outlook. En þótt fyrirtækið noti Outlook nú þegar er ekki víst að áskriftin innihaldi pósthólf fyrir eigið lén. Sumar áskriftir eru aðeins forritin.

Þú þarft ekki Google eða Microsoft til að nota Outlook. Póstur á eigin léni virkar í flestum póstforritum, til dæmis Outlook, Apple Mail og póstforriti símans. Forritið sækir póstinn með IMAP og sendir hann með SMTP, svo hann er eins í öllum tækjum. IMAP samstillir póst en ekki dagatal og tengiliði. Ef það skiptir máli henta Google Workspace eða Microsoft 365 betur.

Veldu út frá því hvernig starfsfólkið vinnur í dag, og athugaðu hvort flytja þurfi eldri póst, dagatöl og tengiliði. ISNIC er með leiðbeiningar um að tengja .is-lén við báðar þjónusturnar (Spurt og svarað (opnast í nýjum glugga)), og Microsoft birtir eigin leiðbeiningar um að bæta léni við Microsoft 365 (opnast í nýjum glugga).

Þarf ég að borga fyrir hvert netfang?

Ekki alltaf. Netfang og pósthólf eru ekki það sama.

  • Eigið pósthólf: einn notandi með eigin aðgang og eigin póst. Oftast er greitt fyrir hvert.
  • Aukanetfang (alias): annað netfang sem lendir í sama pósthólfi.
  • Sameiginlegt pósthólf: fleiri en einn vinna úr sömu fyrirspurnum, eftir heimildum.
  • Áframsending: pósturinn er sendur áfram á annað netfang. Það þýðir ekki að hægt sé að svara frá upphaflega netfanginu.

Segjum að Anna reki fyrirtækið ein. Hún gæti verið með anna@fyrirtaeki.is sem eigið pósthólf og látið reikningar@fyrirtaeki.is berast í sama hólf. Ef hún vill líka senda frá reikningar@ þarf að stilla það sérstaklega.

Þegar fleiri fara að svara viðskiptavinum hentar sameiginlegt hólf fyrir sala@fyrirtaeki.is betur. Möguleikar og leyfisgjöld fara eftir þjónustunni. Sjá til dæmis aukanetföng í Google Workspace (opnast í nýjum glugga) og sameiginleg pósthólf í Microsoft 365 (opnast í nýjum glugga).

Þegar þú biður um tilboð er því betra að segja hverjir þurfa að lesa og svara hvaða pósti en að nefna bara fjölda netfanga.

Uppsetningin skref fyrir skref

Röðin er svipuð hjá flestum póstþjónustum:

  1. Finndu út hver stýrir léninu. Hvar er það skráð, og hvar er DNS-færslunum breytt? Það getur verið hjá tveimur ólíkum aðilum.
  2. Veldu þjónustu og skipulag. Hverjir þurfa eigið pósthólf, hvaða aukanetföng þarf og á einhver að vinna í sameiginlegu hólfi?
  3. Staðfestu að þú eigir lénið. Póstþjónustan biður um DNS-færslu til staðfestingar, oftast TXT-færslu. Búðu til pósthólf og aðganga áður en nýjum pósti er beint þangað.
  4. Tengdu póstinn við lénið. Settu inn MX-færslur samkvæmt leiðbeiningum þjónustunnar, og SPF, DKIM og DMARC fyrir útsendan póst.
  5. Tengdu tækin. Settu póstinn upp í síma, tölvu og þeim forritum sem starfsfólkið notar.
  6. Prófaðu allt. Sendu póst inn og út, prófaðu svör frá aukanetföngum og staðfestu að réttir aðilar komist í sameiginleg hólf.

Ef fyrirtækið er þegar með virkan tölvupóst: ekki breyta MX-færslunum fyrr en flutningurinn er undirbúinn. Nýjar MX-færslur flytja ekki gamla póstinn og röng breyting getur stöðvað móttöku. Hafðu eldri þjónustuna virka þar til nýja uppsetningin hefur verið yfirfarin.

Að lokum: virkjaðu tveggja þátta auðkenningu og tryggðu að fyrirtækið hafi örugga leið til að endurheimta stjórnendaaðganginn.

SPF, DKIM og DMARC í stuttu máli

Þú þarft ekki að muna þessar skammstafanir, en gott er að vita til hvers þær eru:

  • SPF segir hvaða póstþjónar mega senda fyrir lénið.
  • DKIM setur stafræna undirskrift á póstinn sem viðtakandinn getur sannreynt.
  • DMARC tengir þessar athuganir við lénið í sendandanetfanginu og segir hvað gera eigi við póst sem stenst þær ekki.

Rétt uppsetning hjálpar viðtakendum að sjá að pósturinn sé ósvikinn og bætir líkurnar á að hann berist. Hún tryggir samt hvorki að allur póstur lendi í innhólfinu né að enginn reyni að herma eftir fyrirtækinu.

Mundu eftir kerfum sem senda póst í nafni fyrirtækisins, til dæmis bókhaldskerfi, fréttabréfum eða vefsíðunni. Þau þurfa líka að vera með í uppsetningunni. Google lýsir kröfum sínum í leiðbeiningum fyrir sendendur tölvupósts (opnast í nýjum glugga): allir sem senda á Gmail þurfa SPF eða DKIM, og þeir sem senda mikið magn þurfa líka DMARC.

Hvað kostar netfang á eigin léni?

Kostnaðurinn skiptist í þrennt:

  • Lénið. Árgjald .is-léns er 8.220 kr. með vsk. samkvæmt gjaldskrá ISNIC (opnast í nýjum glugga), sem tók gildi 6. október 2026. Lénagjaldið felur ekki í sér pósthólf.
  • Póstþjónustan. Verðið ræðst af fjölda notenda, geymsluplássi og því hvaða verkfæri fylgja. Athugaðu hvort það miðist við árssamning og hvort vsk. sé innifalinn.
  • Uppsetning eða flutningur. Nýtt pósthólf er einfaldara verk en að flytja margra ára póst, tengiliði og dagatöl. Fáðu skýrt hvað er innifalið.

Netföng hjá Litljóma kosta 4.990 kr. á mánuði fyrir hvert pósthólf. Allt er innifalið, þar á meðal uppsetning og SPF, DKIM og DMARC.

Ef fyrirtækið á lénið þegar þarf ekki að kaupa nýtt. Verð þjónustuleiða breytist, svo kannaðu gildandi verð áður en þú ákveður þig.

Hvað verður um gamla póstinn?

Hann flyst ekki með þegar MX-færslunum er breytt. Flutning eldri pósts þarf að skipuleggja sérstaklega og kanna hvort dagatöl, tengiliðir og möppur fylgi.

Ef fyrirtækið skiptir um póstþjónustu en heldur sama léni haldast netföngin óbreytt. Það sem þarf að færa er póstsagan og stillingarnar. Netfang eins og fyrirtaeki123@gmail.com verður hins vegar áfram sérstakt netfang, óháð nýja netfanginu.

Áður en gömlu þjónustunni er sagt upp skaltu staðfesta að gögnin hafi skilað sér og að nýr póstur berist. Ef gamla netfangið verður áfram í notkun er gott að setja upp áframsendingu á meðan viðskiptavinir venjast því nýja.

Algengustu mistökin

Vandræðin koma sjaldnast við fyrstu uppsetningu, heldur við breytingar sem gerðar eru síðar:

  • Póststillingar gleymast þegar vefurinn er fluttur. Ef MX-færslur eða aðrar pósttengdar færslur eru fjarlægðar hættir póstur að berast. Sjá Hvað gerist þegar ný vefsíða fer í loftið?
  • Lénið eða stjórnendaaðgangurinn er á röngum stað. Fyrirtækið þarf að vita hver stýrir léninu, póstþjónustunni og endurnýjun þeirra, líka þegar utanaðkomandi aðili sér um tæknina.
  • Lénið rennur út. Þá hætta bæði vefurinn og pósturinn að virka. Hafðu skýrt hver ber ábyrgð á endurnýjun og greiðslum.
  • Aðeins er prófað að taka við pósti. Það þarf líka að prófa sendingar, aukanetföng, sameiginleg hólf og kerfi sem senda fyrir hönd fyrirtækisins.
  • Póstauðkenning er ófullnægjandi. SPF, DKIM og DMARC þurfa að passa við allar þjónustur sem fyrirtækið sendir póst með. Rangar eða ófullkomnar færslur valda bæði afhendingar- og öryggisvanda.

Vantar þig aðstoð?

Ef þú vilt frekar láta aðra sjá um DNS-stillingar og pósthólf getur Litljómi farið yfir uppsetninguna með þér.

Segðu okkur um hvaða lén ræðir, hversu margir nota póstinn og hvort fyrirtækið sé þegar með póstþjónustu. Ef flytja þarf eldri póst er gott að nefna það líka. Þá getum við farið yfir hvað þarf að gera og hvað verkið felur í sér.

Hvað eigum við að búa til?